04.03.1935
Efri deild: 16. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)

35. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Frv. Þetta er flutt í þeirri mynd, sem hv. Nd. gekk frá því á síðasta þingi, að viðbættum þeim breyt., sem landbn. þessarar hv. d. lagði til, að gerðar yrðu á því. Málið er svo kunnugt frá þinginu í vetur, að ekki virðist ástæða til að fjölyrða um það nú. Legg ég því til, að því verði vísað til 2. umr. og landbn. að þessari umr. lokinni.