15.02.1935
Efri deild: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (11)

Setning fundar í efri deild

Elzti maður deildarinnar, Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M., tók forsæti til þess að gangast fyrir kosningu forseta deildarinnar. Kvaddi hann sér til aðstoðar sem skrifara þá Pál Hermannsson, 1. þm. S.-M., og Jón Auðunn Jónsson, þm. N.-Ísf. Kosning forseta og skrifara.