27.11.1935
Neðri deild: 84. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2420 í B-deild Alþingistíðinda. (122)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Ég veit ekki. hvað líður þeim málum, sem hv. þm. V.-Húnv. vék að, nema því máli, sem liggur fyrir fjhn., sem ég nú starfa í, í fjarveru Ásgeirs Ásgeirssonar. Það var leitað álits um það mál út fyrir þingið, laust eftir að málið kom fram í vetur. Svar hafði nýskeð ekki komið til n. Þá var álitsbeiðnin ítrekuð á ný. Og mér er ekki kunnugt um, að svar sé neitt komið enn. Annars mun fjhn. taka þetta mál til athugunar.