27.03.1935
Neðri deild: 39. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)

74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Forseti (JörB):

Ég skil hæstv. atvmrh. svo, að honum leiki hugur á að láta málið ná samþykki þingsins áður en frestun á sér stað. En dráttur frá deildinni gæti orsakað það, að Alþ. yrði að standa e. t. v. tveim dögum lengur. Og þar sem lasleiki gengur nú mikill í bænum, og ekki er sýnt nema á föstudag gæti aðrir hv. dm. verið orðnir veikir, þá sé ég mér ekki fært að fresta atkvgr., þegar svo er ástatt, að hæstv. atvmrh. óskar eftir, að hún fari fram.