27.03.1935
Neðri deild: 39. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (1363)

74. mál, Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda

Jóhann Jósefsson:

Þar eð hæstv. atvmrh. leggur svo mikið kapp á að fá málið fram og tekur ekki tillit til veikinda af hálfu stuðningsmanna till., þá vil ég vænta þess, að hæstv. ráðh. reyni að fá tvo af sínum flokksmönnum til að sitja hjá við atkvgr. Ég flyt ekki till. til að tefja málið, heldur til að bæta frv. Að öðru leyti beygi ég mig fyrir úrskurði hæstv. forseta.