15.02.1935
Efri deild: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

Kosning fastanefnda

Forseti (EÁrna):

Samkv. þingsköpum ber að kjósa fastanefndir á 2. fundi d., en nú stendur svo á, að það er ekki hægt, því menn eru ekki tilbúnir. Það hefir verið ákveðið að halda fund aftur í dag um sérstakt mál, en til þess að fresta megi kosningu fastanefnda á næsta fundi, þarf afbrigði frá þingsköpum, og vildi ég leita þeirra vegna þess, að fyrir liggur frv., sem nauðsynlega þarf að ganga fram í dag.