21.03.1935
Neðri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 997 í B-deild Alþingistíðinda. (1415)

75. mál, hæstiréttur

Jakob Möller:

Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því, að um 2. mál dagskrárinnar (frv. um hæstarétt), er svo ástatt, að frv. var ekki útbýtt á síðasta fundi. Að vísu las hæstv. forseti það upp meðal útbýttra frv., en það var ekki komið, þegar fundi var slitið. Mér skilst þess vegna, að aths. ætti að fylgja því um að beiðast leyfis þd.