05.03.1935
Neðri deild: 20. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2425 í B-deild Alþingistíðinda. (142)

Fyrirspurn um stjórnarráðstafanir

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég heyrði ekki allt, sem hv. þm. G.-K. sagði, en ég held, að mér hafi verið sagt efnið. Það var um frv. um skuldaskilasjóð og e. t. v. fleiri frv. í svipaða átt.

Ég geri ráð fyrir, að í kringum næstu helgi verði hægt að leggja fram frv. um skuldaskilasjóð, og hygg ég, að þá verði fullráðið, hver fleiri frv. verði látin fylgja.