22.03.1935
Neðri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (1431)

75. mál, hæstiréttur

Jakob Möller:

Ég er því fylgjandi, að dómarar hæstaréttar séu 5 fastir, en þar sem hinsvegar mun vera gert ráð fyrir því í þessari brtt., að sá dómarafjöldi sé því skilyrði bundinn, að fé verði veitt í fjárl. til þess kostnaðar, sem af þessari viðbót leiðir, og ég tel óhæft, að slíkt sé sett í fjárl., þar sem gera má ráð fyrir, að þessu verði hringlað til, sitt á hvað, þá greiði ég atkv. gegn þessari brtt.