25.03.1935
Neðri deild: 37. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (1522)

105. mál, lokunartími sölubúða

Thor Thors:

Þar sem hv. þm. G.-K. er ekki viðstaddur, vildi ég leyfa mér að skýra frá því, að þetta mál er flutt samkv. ósk hreppsnefndar Keflavíkur og er ofur einfalt mál. Sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um það, en vil mælast til þess, að því verði vísað til allshn.