05.11.1935
Efri deild: 61. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (1636)
119. mál, kjötmat o.fl.
Pétur Magnússon [óyfirl.]:
Ég verð að segja það, að mér finnst þessi síðari ræða hv. 1. þm. Eyf. vera bezta sönnunin fyrir því, hve lítil rök er hægt að færa fyrir þessari breyt. Hv. þm. er sýnt um að færa fram rök fyrir sínu máli, en ég fæ ekki séð annað í þessari ræðu hans en rökvillur. Hv. þm. taldi eina aðalástæðuna fyrir breyt., að hægara væri fyrir þrjá menn að komast yfir matið en einn. Hver er að bera á móti því? En ég sé ekki, að með þessari breyt. eigi að fjölga matsmönnunum, heldur að fækka þeim. Nú eru fjórir matsmenn, einn yfirmatsmaður og þrír aðstoðarmenn, sem vitanlega hafa aðallega matið með höndum. Svo að ef hann vill byggja skoðun sína á tölu matsmannanna, þá ætti hann að telja heppilegra að hafa þrjá menn í staðinn fyrir fjóra. (BSt: Þeir bera ekki ábyrgð allir). Eins og þeir beri ekki ábyrgð á sínum störfum eins og hver annar starfsmaður hins opinbera. Ég man ekki betur en að þegar l. frá 1933 voru sett, hafi allir flokkar verið sammála um, að það væri heppilegast að hafa einn yfirmatsmann og með honum störfuðu svo þrír aðstoðarmenn, til þess að fá samræmi í starfið. Eitthvað hefir gerzt síðan, sem gerir það knýjandi að breyta nú til aftur, og það er ósköp eðlilegt, að menn fari að leita að slíkum ástæðum, þó að ég hafi ekki gert það. Einhver skaut því fram hér áðan, að það væru einhverjir aðrir agnúar á núv. matsmanni en að hann gæti ekki framkvæmt sitt starf, t. d. hans pólitísku skoðanir, sem er ekki alveg óvanalegur agnúi nú á dögum. Við höfum nú í tvo ár búið við þetta fyrirkomulag, en matsmaðurinn ekki ennþá komizt yfir að líta eftir á öllu landinu. Ég verð nú að segja, að það skiptir ekki svo miklu máli, hvort það tekur tvo eða fjögur ár, en hitt er aðalatriðið, að hann geri það í fullu samræmi, þannig að kaupendurnir megi treysta því, að kjötið, sem metið er í sama flokki, sé sambærilegt. Ég vil minna hv. þm. á það, að á síðasta þingi var gerð breyt. á fiskimatslögunum í svipaða átt og gert er ráð fyrir í kjötmatsl. frá 1933. Fiskimatsstjóra er ætlað að líta eftir hjá fiskimatsmönnum í þeim tilgangi að samræma fiskimatið. Er þetta sama tilhögun og verið hefir á kjötmatinu. Mér þykir undarlegt, ef þetta fyrirkomulag á fiskimatinu er betra, en sama fyrirkomulag er verra 6 kjötmatinu. Mér virðist sjálfsagt, að sömu reglur gildi um kjötmat sem fiskimat. Ég er því hræddur um, að eitthvað annað liggi á bak við þessa breyt. en það, sem hv. þm. þora að bera fram opinberlega.