25.03.1935
Neðri deild: 37. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (1715)

95. mál, gagnfræðaskóli

Frsm. (Sigurður Einarsson):

Ég ætla aðeins að láta þess getið, án þess að vilja þar með vera að efna til sérstakra umr. um málið, að samþykkt þessarar brtt. gerir að engu þann megintilgang, sem fyrir meiri hl. menntmn. vakti með flutningi frv. Sá ágalli, sem átti að laga, er þá endurvakinn í annari mynd, og án þess að ég ætli að ræða brtt. frekar nú, þá verð ég að telja málinu fullkomlega spillt, ef hún nær samþykki hv. deildar.