12.10.1935
Sameinað þing: 14. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2449 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

Kveðja til Alþingis

forseti (JörB):

Alþingi hefir borizt í símskeyti kveðja og heillaósk frá hv. þm. Snæf. (TT), sem nú er staddur í Suður-Ameríku.

Um leið og ég fyrir hönd Alþingis þakka hv. þm. heillaskeyti þetta, óska ég honum velfarnaðar í ferð hans og að hann megi heill aftur koma.