29.03.1935
Neðri deild: 40. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1182 í B-deild Alþingistíðinda. (1798)

56. mál, bæjargjöld á Ísafirði

Forseti (JörB):

Þessar umr. eru nú komnar alllangt frá efninu, og vil ég beina til hv. ræðumanns þeim tilmælum, að hann haldi sér sem mest við mál það, sem til umr. er. Fer ég þess á leit við hv. ræðumann, að hann noti ekki þingtímann til að gera upp sakir með erlendum þjóðum. Frekari umr. um þetta verða ekki leyfðar.