21.03.1935
Neðri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1880)

50. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

Stefán Jóh. Stefánsson:

Með því að sú regla hefir verið innleidd af stuðningsmönnum þessa frv., að greiða ekki atkv. á móti þeim málum, sem þeir eru á móti, ef svo er háttað skipun d., að það gæti orðið málinu til falls, þá mun ég, í þetta sinn a. m. k. taka upp þessa reglu hv. minni hl. í d. og greiði ekki atkv.