21.03.1935
Neðri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)

50. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

Finnur Jónsson:

Ég vil í tilefni af þeim ástæðum, sem hv. þm. Snæf. færði hér fram, geta þess, að það mun vera fundur í utanríkismálanefnd einmitt um þetta leyti, og því er að sumu leyti óviðkunnanlegt að láta fara fram í d. atkvgr. um mál, sem búast má við ágreiningi um. Ég hefi ekki orðið þess var, að hér væru aðrir Alþýðuflokksmenn fjarverandi, fyrir utan þá, sem eru í utanríkismálanefnd, heldur en hv. 6. landsk. (TT: Annar fulltrúi Alþfl. í utanríkismálanefnd er einmitt viðstaddur). Með tilvísun til grg. hv. 1. landsk. greiði ég ekki atkv.