25.03.1935
Neðri deild: 37. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1886)

50. mál, bæjargjöld í Vestmannaeyjum

Jóhann Jósefsson:

Út af atkvgr. um þetta mál vil ég spyrja hæstv. forseta, hvort hann álíti ekki réttast að fresta henni. var ekki frestað atkvgr. um bæjargjöld á Akureyri? (Forseti: Jú). mér sýnist hv. d. svo þunnskipuð, að ástæða sé til að fresta einnig þessari atkvgr.