23.12.1935
Neðri deild: 10. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2457 í B-deild Alþingistíðinda. (209)

Starfslok neðri deildar

forseti (JörB):

Þá er þetta síðasti fundur d. að þessu sinni. Hæstv. forseti Sþ. mun gera grein fyrir störfum þingsins, og mun ég sleppa því. Ég þakka hv. þm. góða samvinnu á liðnu þingi og árna þeim allra heilla, gleðilegra jóla og góðs nýárs. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimfarar og farsællegrar heimkomu.