04.12.1935
Efri deild: 86. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (2140)

53. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Allshn. hefir farið yfir þetta frv. að nýju, með því að borizt höfðu þrjár umsóknir um veiting ríkisborgararéttar. Hefir n. athugað þær nákvæmlega og bætt inn í frv. þremur mönnum undir 3., 11. og 12. lið á þskj. 682.

Annars er það um þetta frv. að segja, að það lá hér fyrir d. á fyrri hluta þessa þings og fór þá til Nd. Þaðan kom það svo aftur með viðauka, og nú er enn gerð breyt. á því hér, eða bætt við það. Nú má ætla, að allar umsóknir séu fram komnar, og vona ég því, að frv. verði samþ. breytingalaust í hv. Nd.