18.02.1935
Efri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (22)

Kosning fastanefnda

Forseti (EÁrna):

Mér skildist á hv. 10. landsk., að hann mundi ekki sækja það fast að fá svar við tilmælum sínum nú á þessum fundi. (ÞBr: Nei). Þar sem komið hefir fram 6 fundinum, að menn eru ekki á eitt sáttir um það, hvort fjölga skuli mönnum í n. eða ekki, en hægt að taka till. hv. 10. landsk. til athugunar síðar, þó n. sé kosin nú, þá tel ég ekki ástæðu til að fresta kosningu n. Mundi hv. 10. landsk. sætta sig við þá afgreiðslu málsins? (ÞBr: Já ég mun hreyfa ósk minni síðar).