18.02.1935
Efri deild: 5. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (25)

Kosning fastanefnda

Pétur Magnússon:

Ég vil mælast til þess, að till. hv. þm. S.-Þ. um fjölgun manna í allshn. sæti sömu meðferð og till. um landbn. Ef það kemur í ljós, að starf n. verður svo mikið, að þörf sé á að fjölga í n., er alltaf hægt að gera það síðar, ef ósk kemur um það frá n.