06.12.1935
Neðri deild: 92. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1627 í B-deild Alþingistíðinda. (2587)

131. mál, alþýðutryggingar

Forseti (JörB):

Ég vil benda hv. þm. V.-Sk. á það, að um þessar greinar frv. út af fyrir sig er ekki hægt að ganga til atkv. eftir að búið er að ganga til atkv. um hverja grein fyrir sig. Það, sem greitt yrði atkv. um, er því ekki, hvort fella eigi einstaka kafla frv., heldur hvort fella eigi kaflaskipti frv., en það ætla ég, að skipti ekki máli um meðferð málsins og bezt sé að halda gamalli venju og fara eftir ákvæðum þingskapa.