12.11.1935
Neðri deild: 71. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1731 í B-deild Alþingistíðinda. (2699)

40. mál, iðnaðarnám

1) SE:

Þar sem þessi hv. deild hefir ekki getað fallizt á gagngerðar till. til bóta, sem ég og annar hv. þm. höfum flutt, og vegna þess, að mér hefir yfirleitt fundizt það hafa komið fram við atkvgr., að menn álíta málið ekki þess vert, að gerðar væru breyt. á því til bóta, ætla ég, enda þótt ég mælti fyrst með því, að málið yrði lagt fyrir d., að greiða atkv. á móti því og segi nei.