20.12.1935
Efri deild: 100. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (2738)

181. mál, siglingalög

Sigurjón Á. Ólafsson:

Þetta frv. hefir tekið örlitlum breyt. í hv. Nd. Bætt hefir verið inn í 2. gr. ákvæði, sem ekki var tekið með hér, og orðalagi hefir verið vikið við víðar og gert fyllra, t. d. tekið af skarið um, að það skuli ekki telja heimferð, ef skipið fer til veiða. Sjútvn. telur rétt að samþ. frv. með þessum litlu breytingum.