05.12.1935
Efri deild: 87. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1821 í B-deild Alþingistíðinda. (2801)
192. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs
Þorsteinn Briem [óyfirl.]:
Ég ætla ekki að tala um afstöðu mína til frv. í heild. Ég hefi átt þess kost á öðrum vettvangi, en ég vildi víkja nokkrum orðum að einstökum atriðum í 3. gr. Eins og menn munu hafa tekið eftir, er í frv. gert ráð fyrir, að jafnalgengt verkfæri eins og skóflur falli undir þá tollálagningu, sem hér um ræðir. Ég vildi leyfa mér að flytja skrifl. brtt. um þetta efni og jafnframt að í undanþáguákvæðunum í sömu gr. komi ákvæði um það, að landbúnaðarverkfæri allskonar séu undanþegin þessum tolli. Ég hefi ekki talið ástæðu til þess að telja upp öll þau mörgu verkfari, sem þar koma til greina og ekki eru talin í frv., en þau eru margbreytileg, sérstaklega þau, sem notuð eru til garðyrkju. Í 3. lagi gengur mín skrifl. brtt. út á það, að á eftir orðinu „rúgur“ komi: og fóðurvörur allskonar. Ég veit vel, að það er rétt stefna að takmarka hæfilega innflutning á fóðurvörum, svo þær séu ekki notaðar meira en þörf krefur. En við þekkjum öll svo mörg ný og gömul dæmi þess, að það hefir orðið óhjákvæmilegt að flytja inn fóðurvörur. Venjulega er verðlaginu þannig hagað á markaðinum, að maís er nokkru ódýrari en rúgur til fóðurbætis. Það, sem vakti fyrst og fremst fyrir mér, er, að menn yrðu ekki skattlagðir í harðærum. Jafnframt er þess að gæta, að þær fóðurvörur, sem við getum framleitt og er sjálfsagt að nota, koma ekki að fullum notum handa sumum tegundum búpenings, nema útlendur fóðurbætir sé gefinn með. Síldarmjöl og fiskimjöl hefir ekki inni að halda þau réttu hlutföll efna, sem þurfa til mjólkurframleiðslu. Ég vænti þess, að með innflutningsnefnd, sem nú er, sé vel hægt, þó þetta gangi fram, að tryggja það, að ekki sé flutt inn um of, og það má ekki minna vera en að kosti bænda sé ekki þröngvað, þegar búrekstur þeirra krefst þess, að þessar vörur verði að nota. Ég vil því bera fram skrifl. brtt. í þá átt, og ætla hér með að afhenda hæstv. forseta hana, ef hann vill leita um hana afbrigða, svo að hún megi koma til umr.