15.02.1935
Sameinað þing: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (3)

Kosning forseta

Jónas Jónsson:

Ég vil leyfa mér að fara þess á leit við hæstv. aldursforseta, að hann gefi stutt fundarhlé, til þess þm. gefist kostur á að athuga, hvort forsetakosningar geti farið fram nú þegar, því að ennþá eru nokkrir þingmenn ókomnir til þings. En forsetakosningar geta ekki farið fram, nema vissa sé fyrir því, að réttur neins þingflokks verði ekki fyrir borð borinn. sakir þess að þingið er ekki fullskipað nú.