20.12.1935
Neðri deild: 104. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2184 í B-deild Alþingistíðinda. (3149)

184. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Pétur Ottesen:

Ef þetta hefði borizt til tals meðan á umr. stóð, þá var þetta eðlilegt, en undir þeim kringumstæðum, að nú er búið að slíta umr., er allt öðru máli að gegna. Og ég vil benda á, að hér ber forsetum deildanna á milli, því að forseti Ed. hefir látið þessa liði koma undir atkv. og þar hefir þetta verið samþ. Forsetum deildanna ber því hér á milli.