11.11.1935
Efri deild: 66. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2204 í B-deild Alþingistíðinda. (3191)

172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Þetta mál er flutt fyrir beiðni hæstv. atvmrh. af meiri hl. allshn. Málið hefir ekki enn verið athugað af n., en það verður gert. Ég ætla ekki nú að fara neitt út í frv., en því fylgir ýtarleg grg., og má að miklu vísa til hennar, og vil ég mælast til, að málinu verði vísað til 2. umr.