16.12.1935
Neðri deild: 100. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2240 í B-deild Alþingistíðinda. (3221)

172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins

Jóhann Jósefsson:

Ég veit ekki, hvort hæstv. forseti heldur því fast fram, að þetta frv. verði nú tekið til umr. Ég ætlaði að tala um málið, áður en því verður vísað til n. Þetta er þannig lagað mál og svo víðtækt, að það er mikil þörf á að upplýsa hv. þdm. um það. - Ég er reiðubúinn til að tala nú, en það verður að líkindum nokkuð langt.