20.12.1935
Neðri deild: 104. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2278 í B-deild Alþingistíðinda. (3246)

172. mál, Ferðaskrifstofa ríkisins

Frsm. meiri hl. (Héðinn Valdimarsson):

N. hefir athugað þetta mál, en ekki orðið á eitt sátt og er klofin í málinu. Meiri hl. n. leggur til, að þetta mál verði afgr. óbreytt, en áskilur sér rétt til að koma með brtt. við 3. umr. Að öðru leyti hefir svo mikið verið talað um málið við 1. umr., að ég fer ekki út í einstök atriði.