21.12.1935
Efri deild: 101. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2337 í B-deild Alþingistíðinda. (3370)
173. mál, fólksflutningar með bifreiðum
Magnús Jónsson [óyfirl.]:
Það eru aðeins örfá orð um aðra brtt. á þskj. 899, er fer fram á, að 3. gr. l. verð breytt, og töluvert hefir verið rætt um hvort eðlilegra væri að skipa n. eins og þar er tiltekið eða hvort Alþýðusamband Íslands á að fá einhverja sérstöðu eða sérréttindi til þess, að því annars ólöstuðu, að skipa mann í n. Ég hefi ekki heyrt aðra ástæðu færða því til stuðnings en þá, að þessi nm. frá Alþýðusambandi Íslands eigi að vera fulltrúi alls landslýðsins, sem notar bílana. En það er vitanlega alveg óviðeigandi, að sá matur, sem þannig er skipaður, verði fulltrúi þeirra, sem bílana nota. Fulltrúi almennings á vitanlega að vera sá maðurinn, sem mestu rætur í n., og fer með yfirstjórn þessara mála, en það er póst- og símamálastjórinn. Efni 3. gr. l. er á þá leit, að n. beri að gera tillögur til póst- og símamálastjóra um það, sem betur mætti fara um skipulag og rekstur fólksflutninga með bifreiðum. Þetta finnst mér alveg eðlilegt hlutverk. Það er enginn annar tilgangur með skipun þessarar n. en sá, að þar komi fram sú sérþekking á framkvæmd þessa máls, sem til er í landinu. N. á að vera nokkurskonar málgagn fyrir þá, sem hafa með höndum fólksflutningana á rútuferðunum. Þar eiga þeir að hafa vettvang til að bera fram tillögur sínar og óskir við póst- og símamálastjóra, um breytingar eftir því, sem reynslan bendir til. Og þar eiga þeir einnig að hafa tækifæri til að flytja sín hagsmunamál í þessu efni, án þess að hafa nokkur ráð eða úrskurðarvald í n. En það er aftur á móti að sjálfsögðu hlutverk póst- og símamálastjóa, að sikta úr tillögum þeirra það, sem bezt er og horfir til bóta. Áður áttu sérleyfishafar að skipa meiri hl. n. eða svo að segja alla mennina, en nú á að breyta þessu svo freklega, að þeir eiga aðeins að hafa minni hl. Mér finnst réttara, ef nauðsynlegt þykir að bæta tveimur mönnum í n., að annar sé skipaður af bílstjórafélögunum, en hinn samkv. tilnefningu atvmrh. Sumum kann ef til vill að þykja það undarlegt, að atvmrh., sem er yfirmatur þessara mála og getur komið fram sínum vilja og áhrifum í gegnum póst- og símamálastjóra, skuli eiga að skipa mann í n. aðeins til þess að gera tillögur til sjálfs sín. Þeir einu aðiljar, sem hlut eiga að máli og ég get hugsað mér, að mundu tortryggja n. og gagnrýna gerðir hennar, eru sérleyfishafar sjálfir. Og þess vegna finnst mér eðlilegast, að sérleyfishafar skipi n. aðallega sjálfir og að þeir beri fram í n. tillögur sínar og óskir. Ég vil því mæla með því, að brtt. á þskj. 899. verði felld, og álít óþarft að gera nokkrar breyt. á skipun n. Ég hygg, að 3. gr. geti staðið óröskuð, þó að einhverjar aðrar breyt. verði máske gerðar á l.