25.11.1935
Neðri deild: 82. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í C-deild Alþingistíðinda. (3711)
165. mál, vörugjald Sauðárkrókshrepps
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég hélt, að samkomulag hefði orðið um að láta þetta og önnur slík frv. bíða vegna þáltill. þeirrar um þessi mál, sem hér er komin fram. En þar sem ég sé, að svo er ekki, vil ég flytja skrifl. brtt. um það, að slík heimild, ef veitt verður, sé fyrir bæjar- og sýslufélög, en ekki bæjar- og hreppsfélög. Mér finnst rétt, að hreppar, þar sem ekki er kauptún, geti einnig notið slíks gjalds. Annars fer svo, að kauptúnin ein geta skattlagt þær vörur, sem seldar eru út um sveitirnar, án þess að sveitirnar fái nokkuð í aðra hönd.