08.03.1935
Neðri deild: 23. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (3852)

47. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Flm. (Bergur Jónsson):

Ég ætla ekki að fara að deila um frumv. nú, enda gaf hv. 6. landsk. ekki tilefni til þess. En ég vil geta þess, að á síðasta Alþingi var annað frumv. um sama efni borið fram af hv. 6. landsk. og hv. þm. Vestm., og var þá samkomulag að deila ekki um þau fyrr en þau væru komin til n., og ég vona, að nú geti staðið við það sama, ef hitt frumv. kemur einnig fram á þessu Alþingi.