08.03.1935
Neðri deild: 23. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 419 í C-deild Alþingistíðinda. (3857)

48. mál, fyrning verslunarskulda

Flm. (Gísli Sveinsson) [óyfirl.]:

Ég skal ekki fara að ræða þetta mál frekar en orðið er við þessa umr., en vil aðeins geta þess, að það er formsatriði, hvort frv. er vísað til landbn. eða allshn. En vil beina því til hv. lögfræðings, sem sæti á í allshn. - (TT: við erum þar nú 4). Já, þið eruð víst nokkuð margir þar -, að frv. þetta gildir um fleiri en bændur, eða nær yfir fleiri verzlunarskuldir en bænda, jafnvel yfir hv. þm., ef hann skuldar, sem náttúrlega kemur ekki fyrir. En ég læt mig það engu skipta, til hvorrar n. frv. verður vísað.