08.03.1935
Neðri deild: 23. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í C-deild Alþingistíðinda. (3862)

48. mál, fyrning verslunarskulda

Bjarni Ásgeirsson:

Það hefir komið í ljós, að hv. þm. hafa ekki mikla trú á þessu frv. En sá eini þm., sem er stuðningsmaður þess utan hv. flm., er hv. 8. landsk., og hann á sæti í allshn. Verð ég því að álíta, að málinu sé þar bezt borgið, og held mig að því, að frv. verði vísað þangað.