21.12.1935
Sameinað þing: 36. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í B-deild Alþingistíðinda. (395)

137. mál, fjáraukalög 1933

Forseti (BÁ):

Tveir þm. eru nú á mælendaskrá, og vil ég beina því til hv. þm. að reyna að stytta mál sitt, því að þetta mál er þegar töluvert rætt og ég býst ekki við, að það upplýsist mikið enn. Hinsvegar er nokkuð farið að líða á þennan drottins dag, sem yfir okkur kom á þessum fundi, en nauðsynlegt er að koma málinu nú til 3. umr., og það mun mega takast.