18.03.1935
Neðri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í C-deild Alþingistíðinda. (3993)

92. mál, hlutabréf í Útvegsbanka Íslands h/f

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég talaði nokkuð á síðasta þingi gegn þessu frv. og ætla ekki að endurtaka það nú fremur en hv. flm. sínar skoðanir, þar sem ég þykist vita, að hv. þdm. sé ekki úr minni liðið það, sem ég þá færði fram gegn frv. Aðeins vil ég vekja athygli á því, að ég mæli enn gegn frv. og vænti þess, að hv. fjhn. athugi þau rök, er ég færði fram í málinu á síðasta þingi.