18.03.1935
Neðri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í C-deild Alþingistíðinda. (3994)

92. mál, hlutabréf í Útvegsbanka Íslands h/f

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Ég hefi heyrt á mál hæstv. fjmrh., og kemur mér það í sjálfu sér ekkert á óvart, þó hann mæli gegn frv. En ég vil benda hv. fjhn. á það, að vel geta komið til greina ýmsar aðrar leiðir heldur en sú, sem í frv. er farin, til þess að gefa þessum mönnum sinn rétt. Og ég vil taka fram, að ég mun ekki einskorða mig við þessa einu leið, sem í frv. er bent á, ef hv. fjhn. sér aðrar leiðir færari, er hún hefir athugað málið, sem ég vil vona, að hún geri vandlega, en um það vil ég sérstaklega beina áskorun til þeirra hv. nm., er mál mitt mega nema.