30.03.1935
Neðri deild: 41. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í C-deild Alþingistíðinda. (4028)

98. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Flm. (Sigurður Kristjánsson):

Ég lagði ekki til, að frv. væri vísað til n., af því að það hefir verið áður í sjútvn. Við flm. báðum n. um að taka þetta frv. til athugunar í sambandi við hitt frv. Meiri hl. neitaði því. Ég lagði því ekki til, að frv. yrði vísað til sjútvn., því að ég lít svo á, að það séu ekki nema tveir menn í n., sem bera skyn á sjávarútvegsmál.