19.10.1935
Neðri deild: 52. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í C-deild Alþingistíðinda. (4104)

117. mál, sjóðir líftryggingafélaga

Hannes Jónsson:

Það er slíkur hundavaðsháttur á störfum þessa Alþingis, að slíks munu fá dæmi. Það er ekki einu sinni svo, að boðað sé til funda á venjulegan hátt. Mér virðist ekkert úr vegi, að reynt verði að kenna þessum mönnum, er þannig haga sér, að haga sér eins og siðuðum mönnum sæmir. Mun ég því ekki greiða atkv.