19.10.1935
Neðri deild: 52. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í C-deild Alþingistíðinda. (4107)

117. mál, sjóðir líftryggingafélaga

Forseti (StJSt):

Ég vil taka það fram, sakir þess, að ýmsir þm. hafa neitað að greiða atkv. af því, að þeir hafi ekki vitað um fundinn eða hvaða mál voru á dagskrá. Því að þeir hefðu enga dagskrá fengið, að fundurinn í dag var boðaður í gær eins og venja er, og þá lesin upp þau mál, sem á dagskrá eru í dag. Hljóta hv. þm. því að hafa vitað um fundinn og dagskrá hans, enda þótt sumir þeirra hafi ef til vill enga dagskrá fengið.