23.11.1935
Neðri deild: 81. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í B-deild Alþingistíðinda. (418)

170. mál, landsreikningurinn 1933

Frsm. (Sigfús Jónsson):

Frv. um samþykkt landsreikningsins fyrir 1933 hefir legið fyrir fjhn. Hefir n. athugað landsreikninginn og borið saman við fjárl. fyrir sama ár og ekkert fundið athugavert við þann samanburð. Leggur n. því til, að frv. þetta verði samþ. eins og það liggur fyrir d.