15.02.1935
Neðri deild: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (42)

Kosning fastanefnda

forseti (JörB):

Sakir þess að flýta þarf afgreiðslu máls, er nauðsynlegt að halda fund kl. 5. En þar sem þingsköp áskilja, að kosning nefnda fari fram á 2. fundi deildarinnar. Þarf afbrigði til, að henni megi fresta. Með því að nokkra þm. vantar og aðrir eru nýkomnir til bæjarins, hefir flokkum ekki gefizt tækifæri til að tala saman um, hvernig eigi að skipa í n. Legg ég því til, að einnig um þetta atriði verði leyfð afbrigði frá þingsköpum.