10.12.1935
Neðri deild: 95. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í C-deild Alþingistíðinda. (4323)

191. mál, þingsköp Alþingis

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt rökst. dagskrá frá hv. þm. Snæf. og hv. 8. landsk., svo hljóðandi:

„Þar eð þingflokkarnir hafa skipað nefnd til að semja um breytingar og endurbætur á þingsaköpunum og þar eð deildin telur æskilegast, að þingsköp séu sett með samkomulagi allra flokka, vill hún vísa þessu máli til fyrrgreindrar nefndar og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“

Dagskrártill. þessi liggur hér einnig fyrir til umr.