12.12.1935
Neðri deild: 97. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í C-deild Alþingistíðinda. (4344)

191. mál, þingsköp Alþingis

Thor Thors:

Hæstv. forseti gat þess í ræðu sinni, að hann vildi beita sér fyrir því, að samkomulag næðist um málið milli umr., og að hann gæti jafnvel fallizt á það, að málið yrði tekið til athugunar til næsta þings. Hafi ég skilið þetta rétt, mun ég taka dagskrá mína aftur til 3. umr., og býst ég við, að sjálfstæðismenn muni þá ekki bregða fæti fyrir málið þangað til.