07.03.1935
Efri deild: 19. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 762 í C-deild Alþingistíðinda. (4431)

39. mál, ríkisgjaldanefnd

Flm. (Magnús Jónsson):

Þetta frv. er shlj. frv. sömu flm. um þetta efni á síðasta þingi. Þar hafði málið verið rætt allýtarlega og nefndin skilað áliti, og tel ég því ekki þörf á að fjölyrða um það nú. Óska ég þess, að málinu verði vísað til fjhn. að þessari umr. lokinni.