17.10.1935
Efri deild: 46. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í C-deild Alþingistíðinda. (4542)
125. mál, lax- og silungsveiði
Flm. (Páll Hermannsson):
Eins og getið er um í hinni stuttu grg., sem fylgir frv., er það flutt eftir ósk fiskiræktarfélags Fljótsdalshéraðs. Þegar lögin um lax- og silungsveiði voru sett á Alþingi 1932, þá var þar um allmikið verk að ræða, því að sá lagabálkur er umfangsmikill. Og ég hygg, að ýmsum hafi þá verið ljóst, að þessi lög mundu þurfa ýmiskonar lagfæringar við áður en langt um liði. Á undanförnum þingum hafa líka komið fram nokkrar till. til breyt. á lögunum, enda þótt þær hafi ekki verið samþ., að ég ætla. Þetta frv. fer fram á lítilsháttar breyt. á einu atriði í 8. kafla laganna, sem fjallar um fiskiræktarfélög. Í þessum kafla er gert ráð fyrir, að stofna megi félagsskap til þess að auka lax- og silungsveiði í ám og vötnum, svo kölluð fiskiræktarfélög. Gert er ráð fyrir, að hver einstaklingur í þessum félögum mæti á fundum, þó þeir að vísu megi gefa öðrum umboð til að mæta þar fyrir sig. En það er ekki ætlazt til þess, að félögin skiptist í deildir eða að félagsfundir skuli vera fulltrúafundir, eins og tíðkast í öðrum samvinnufélagsskap. Ég hygg, að það hafi varla verið gert ráð fyrir jafnvíðlendu félagssvæði eins og er á Fljótsdalshéraði. En þar hefir nú verið stofnað fiskiræktarfélag samkvæmt lögum þessum, sem nær yfir 9 hreppa. Á þessu svæði eru töluvert á annað hundrað jarðir, og ábúendur þeirra jarða eiga sæti á félagsfundum, og eiga samkv. l. að taka þar beinan þátt í meðferð félagsmála.
Það kom strax í ljós, að þetta var afaróhentugt og þunglamalegt í framkvæmd, og er hæpið, að hægt sé að halda félagsskapnum starfandi í þessu formi. Að vísu má halda því fram, að bjargast megi við það ákvæði laganna, þar sem félagsmönnum er heimilt að gefa öðrum umboð til þess að fara með atkv. sitt á félagsfundum; en reynslan hefir sýnt, að það hefir yfirleitt verið trassað og gefizt illa, og þar af leiðandi verið erfitt að halda félagsskapnum starfandi.
Út af þessari reynslu hefir stjórn fiskiræktarfélags Fljótsdalshéraðs óskað eftir því, að bætt verði inn í lögin ákvæði um, að fiskiræktarfélög megi skiptast í deildir, þar sem félagssvæði eru stór, og að félagsfundir skuli vera fulltrúafundir.
Ég geri ráð fyrir, að þetta frv. fari til n., en þar sem málið liggur svo ljóst fyrir, má vænta þess, að n. afgr. það fljótt. Við flm. frv. höfum flutt þetta mál nákvæmlega í því formi, sem stjórn fiskiræktarfél. Fljótsdalshéraðs óskaði eftir. Má vera, að það þurfi einhverra endurbóta við, sem þá kunna að koma fram í nefndinni. Ég óska, að frv. verði vísað til 2. umr. og landbn.