14.11.1935
Efri deild: 69. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í C-deild Alþingistíðinda. (4610)

145. mál, skotvopn og skotfæri

Forseti (EÁrna):

Mér hefir borizt skrifl. brtt. við frv. það, sem hér er nú til umr., frá hv. þm. Dal., svo hljóðandi:

„Við 2. gr. 1. málsgr. Á eftir orðunum „að þeim sé það“ bætist inn í: gagnlegt, eða“.

Þessi brtt. er komin fram á fundinum og þar að auki skrifleg. Þarf því tvennskonar afbrigði til þess að hún verði tekin fyrir til umr.