02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (4723)
112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt
Sigurður Kristjánsson:
Ég er með skrifl. brtt., sem ég ætla að biðja hæstv. forseta fyrir. Efni till. er það, að þessari fjárupphæð verði varið til að bæta tjón það, sem bændur biðu á óþurrkasvæðinu síðastl. sumar. Ég vildi gera nokkra grein fyrir þessu.
Það hefir verið birt í blöðum stj., að bændur hafi fengið 30 aurum meira fyrir kílóið af kjötinu í ár heldur en þeir hafa fengið áður. Þetta á nú að hafa græðzt á þessu nýja skipulagi. Ég fyrir mitt leyti álít, að það muni vera mjög sómasamlegt verð, sem bændur fá fyrir kjötið, ef þetta er satt. Og þó að ég meti ekki sem gull allt það, sem blöð þessi segja, þá býst ég við, að a. m. k. framsóknarmenn og sennilega Alþfl.menn meti það bændum sem gull, sem þeirra blöð flytja.
En nú er ekki hægt að neita því, að þó að bændur fái ágætt verð fyrir kjötið í þetta skipti, þá hafa þeir beðið geysimikið tjón af óþurrkunum síðastl. sumar. Þarf að bæta þeim það að einhverju, engu síður en ef kjötið hefir selzt illa, sem ekki er, eftir frásögn þeirra, sem er það kunnugt. Þess vegna ætla ég að leyfa mér að leggja fram þessa skrifl. brtt. og vænti þess, að hún fái að koma til atkvæða.