02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í D-deild Alþingistíðinda. (4735)

112. mál, verðuppbót á útflutt kjöt

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þar sem breyt. hefir verið gerð á þessari till. með úrskurði hæstv. forseta, þá vil ég benda á það, að ef seinni hluti þessarar till. er borinn upp, þá er það sama og að ákvæði þáltill. um að fella burt 10% fjárveitinguna til nýrra akvega sé fellt burt, og þá er engin ráðstöfun gerð í till. til þess að draga úr þessum fjárveitingum, nema þessi eina, að draga af framlagi til samvinnubyggða.